|
29.05.2005 15:40:41 / weekend82
Nú er nóg að gera hjá pólfaranum. Búinn að ná
einkaflugmannsprófinu og byrjaður að fljúga. Er t.d. að fara
í loftið klukkan 18:30 í kvöld   
Gerði mestu mistök ævinnar í gærkvöldi að kíkja á dætur
reykjavíkurborgar, fór heim klukkan rúmlega 3 og mætti í vinnu
klukkan 6:15, ég get sagt ykkur það að þetta geri ég aldrei aftur..
er búinn að liggja slefandi og hrjótandi á hverjum einasta
bekk sem ég get fundið hérna niðri í vinnu, þetta var ekki alveg
nægjanlega skynsamur leikur.
Ákvað svo í góðu flippi að tékka á því hvernig er að krúnuraka á
mér kollinn, Beggi meistari héðan úr vinnunni mætti með græjur og
hárið fékk að fjúka. Ég verð nú bara að segja sjálfur frá en ég er
dead sexy svona nánast sköllóttur 
Jæja nóg í bili... vél að lenda og ég þarf að fara og hirða
farangur og koma honum til skila.. bless í bili
»
19.05.2005 12:29:45 / weekend82
Setti inn nýja skoðanakönnun bara svona til að tékka á
stemmingunni, endilega kíkja á hana.
Annars er búið að vera nóg að gera hjá manni undanfarið.
Er að klára einkaflugið, fer vonandi í verklega prófið í næstu
viku. Búinn að versla mér eins og þrjú stykki flugvélar til
að fljúga með ykkur elskurnar mínar, þannig að þið bara hafið
samband þegar ykkur vantar að komast út fyrir bæjarmörkin. Ég
er til í að fljúga með alla hvert sem er svo lengi sem veður
leyfir.
Læt þetta duga í bili
ble ble
»
22.12.2004 16:52:38 / weekend82
Það var margt um manninn í sjálfstæðishúsinu á Seltjarnarnesi í
gærkvöld. Háskólanemar voru að fagna próflokum. Þó svo að ég sé nú
ekki í Háskólanum akkúrat þessa stundina þá vill það svo til að ég
þekki fólk sem var að ljúka prófum, þannig að mér var boðið með í
þessa samkomu. Ég get sagt ykkur það að ölvun ógilti engan veginn
miðann heldur var hún almenn. Fólk gjörsamlega missti sig og má þar
nefna JP fyrstan í flokki en honum tókst að eyðileggja jólatré sem
búið var að skreyta (fagurblátt að sjálfstæðissögðu). Annars var
dansgólfið aðal vetvangur kvöldsins og ekki verður hægt að neita
því að pólfarinn hafi tekið 1 eða 2 snúninga en klárlega var "OUT
OF SPACE" með meisturum Prodigy hápunkturinn. Eini bömmer dagsins
er sá að ég var mættur í vinnu klukkan 8 í morgun... en hey...
who´s to blame ??? ég vil meina að þetta sé allt saman Þóri að
kenna þar sem hann þurfti endilega að láta mig vita af þessu !!!
Tóti ég er ekki sáttur  Jæja læt þetta duga í bili, þarf að
fara að vinna í skítakuldanum sem er úti
»
17.12.2004 02:02:46 / weekend82
Var að spá... mikið væri nú gott að geta gert ekki neitt ... og
hvílt sig svo á eftir !!
»
14.12.2004 15:45:03 / weekend82
Djöfull hata ég það að vera með hausverk, það er það mest pirrandi
í heimi !!! Annars var helgin bara nokkuð góð... smá djamm og svona
ekkert alvarlegt. Fór líka á laugardagskvöldið og borðaði með alveg
hreint frábæru fólki en það voru Anna Steinunn, Kristín María og
Himmi Thule, þakka góðan kvöldverð á Hróa Hetti. Sveittur borgari
og fröllur, svo skemmdi þessa massífa sveppasúpa ekki fyrir. Svo
vil ég þakka Ómari og Berglindi kærlega fyrir að nenna að láta sjá
sig á laugardagskvöldið... kann að meta það mjög mikið. Annars vil
ég bara óska þeim sem ég þekki og eru í prófum góðs gengis, ég vona
innilega að ykkur gangi sem allra allra best
»
10.12.2004 13:04:42 / weekend82
Næs helgi framundan... settið að fara út og ég og bróðir minn einir
með húsið... það er það þægilegasta sem ég veit, að vera einn
heima.
»
09.12.2004 13:09:49 / weekend82
Gleymdi að setja inn brandara dagsins.. en svo þið verðið nú
ekki vonsvikin þá kemur hann hérna:
Ljóska nokkur gekk inn í gluggatjaldaverslun og sagði við
afgreiðsludömuna að hún þyrfti að fá bleik gluggatjöld sem pössuðu
akkúrat yfir tölvuskjáinn hennar. Afgreiðslukonan varð nú
nokkuð undrandi á þessu og spurði hvers vegna hún þyrfti
gluggatjöld fyrir tölvuskjáinn. Ljóskan missti andlitið og
svaraði.. DÖÖÖ ... ég er með windows
»
09.12.2004 12:58:21 / weekend82
Nú er maður víst orðinn virðulegur forfallakennari í Langholtsskóla. Búinn að skrifa undir eitthvað plagg sem vottar það meira að segja. Eini gallinn við þetta djobb er að maður er kannski búinn að gera plön um að gera eitthvað um morguninn en svo er einfaldlega hringt í mann á mjög ókristilegum tíma, eða klukkan 08:06 að morgni til og maður beðinn um að mæta og kenna. Lenti á 8. bekk í morgun og það að kenna stærðfræði og ég kann ekkert í stærðfræði. Ég get ekki ímyndað mér að ég hafi nokkru sinni verið svona mikil gelgja. Held að homrónaflæðið í unglingum í dag sé miklu meira en í gamla daga þegar ég var ungur. Það þarf að gera eitthvað í þessu !!!
»
08.12.2004 11:18:23 / weekend82
Mikið rosalega fer það í mínar allra allra fínustu þegar maður
sofnar á skikkanlegum tíma, sona rétt um miðnættir og svo vaknar
maður aftur um sirka 2:00 og sofnar ekki aftur fyrri en klukkan
5. Þessari skemmtilegu lífsreynslu lenti ég í í nótt.
Hvað var síðan málið með Chelsea og að vera 1-0 yfir og tapa 1-2
fyrir Porto. Held að Mourinho hafi ekki verið par sáttur með
sína menn í gær. Held samt að hann hafi nú haldið kúlinu
blessaður hrokafulli karlinn.
Svo einn brandari í lokin, sem Ómar vinur minn og félagi sagði
mér í góðu tómi, Hver er munurinn á ljósku og moskítóflugu
??? Moskítóflugan hættir að sjúga eftir að þú slærð
hana
»
07.12.2004 22:53:44 / weekend82
Lenti í smá stympingum við annan mann á æfingu, eða rétt fyrir æfingu, og rak miðtána á vinstri fætinum í bekk. Táin er gjörsamlega fjólublá, og mér er illt
»
07.12.2004 13:07:17 / weekend82
Jæja gott fólk... pólfarinn ætlar hér með að vera duglegri að
segja frá daglegu amstri sínu á netinu og deila sínu
jafn"leiðinlega" lífi með ykkur. Það er allt að gerast í
mínu lífi núna. Prófin búin og aldrei þessu vant þá slapp
maður í gegnum þetta allt saman... fæ allavega að taka öll prófin
hjá flugmálastjórn í janúar. Mér finnst þetta allt saman samt
svo pointless, að taka fyrst próf í skólanum og svo aftur úr því
sama hjá Flugmálastjórn. Þetta er eins og ef það þyrfti að
taka fyrst próf hjá HÍ og svo væri menntamálaráðuneytið með próf úr
því sama og fólk fengi ekki diplomað nema standast prófin hjá
ráðuneytinu.. s.s. fáránlegt.
Fékk líka að vita það um daginn að ég er að fara til Kýpur í
byrjun janúar að keppa. Helvíti næs huxaði ég, komast aðeins
í hitann, en viti menn meðalhitastig á Kýpur í janúar er 5-8° á
Celsíus, hef ekki hugmynd um hvað það er mikið á Farenheit skalanum
hvað þá Kelvin skalanum.
Svo langar mig að kvarta yfir þessu árans veðri sem er
leiðinlega leiðinlegt á Íslandi þessa dagana, eða bara yfirleitt
hérna á þessum blessaða klaka sem við kjósum að kalla Ísland.
Ég skil hreinlega ekki hverjum datt í hug að koma hingað in the
first place, hvað þá að dveljast hérna eftir að viðkomandi fattaði
hvernig veðurfari væri háttað hér.
Jæja nóg í bili, ble ble
»
14.07.2004 15:29:40 / weekend82
Jæja loksins loksins lætur tjallinn heyra í sér. Nú hafa átt sér
stað miklar breytingar á framtíðarplönum vitleysingsins. Ég er
hættur í stjórnmálafræðinni og ætla að rannsaka hættur himinsins.
Já kallinn er farinn í flugið. En áður en hægt er að hefja sig til
flugs og byrja að læra að fljúga eins og fuglinn er alls konar rugl
sem maður þarf að standast. Ég er staddur í miðjum rannsóknum á
mínum flókna og erfiða líkama. Alls konar læknisskoðanir sem ég
þarf að standast... heilarit, blóðprufa, sjónpróf, heyrnarpróf og
lungna og hjartaröntgen svo dæmi séu tekin. En ef allt fer eins og
maður vonar og læknirinn grándar mann ekki þá er allt í góðu og
vonandi að maður geti "get airbourne" í byrjun ágústmánuðar. Svo
fór maður á Sauðárkrók og upplifði landsmót UMFÍ, þetta er ekkert
smá batterí maður og keppt í öllu mögulegu rugli t.d.
pönnukökubakstri, traktoraakstri, að leggja á borð, plöntugreiningu
og gróðursteningu. Mér hefur hugkvæmst að stofna ungmennafélag og
vera með á næsta ári. Hugsanlegir liðsmenn verða Kolla í
pönnukökurnar, Þórir í traktorinn, addinn í að leggja á borð,
kristín maría í gróðursetninguna og sæssi rokk í plöntugreininguna.
Sjálfur myndi ég keppa í hniti og golfi.. öllum er frjáls aðgangur
að ungmennafélaginu Hnitverja. Ljónið sé ég fyrir mér í
fimleikunum... tel líklegt að kallinn kunni ennþá eitthvað fyrir
sér í hringjunum og á gólfinu. Læt þetta nægja að sinni L8er
»
01.06.2004 12:52:53 / weekend82
Djöfull er búið að vera geðveikt mikið að gera hjá mér þessa
dagana. Vinnan er að gera útaf við mig og svo er maður að æfa líka.
En sem betur fer styttist í útlandaferð. Fer til Hollands á
mánudaginn... JIBBÍ, spurning um að kíkja aðeins í rauða hverfið og
svona. En þarf að hætta núna það er að lenda flugvél og ég þarf að
hirða úr henni farangurinn
L8er
»
18.05.2004 14:49:25 / weekend82
Jæja kominn tími til að láta í sér heyra aðeins. Prófin eru til allrar hamingju búin og gengu bæði upp og niður. Eftir prófin var hins vegar haldið í sumarbústað og var sú ferð hin ágætasta. Ölvun ógilti ekki miðann og var því vindi hagað eftir þeim seglum. Mér finnst verst að ekkert var um skandala. Þórir fór á kostum í svefni og svaf tvær nætur sitjandi í sófanum með buxurnar á lærunum og hendurnar ofan í nærbuxunum. Spurning hvað gekk á þar ? Með því fyndnara sem ég hef séð. Heiti potturinn var vetvangur játninga, þar komu fram hin ýmsu leyndarmál. En ég vil bara þakka öllum sem mættu í bústaðinn kærlega fyrir góða helgi og vonandi bara að þetta verði endurtekið í bráð.
Svo langar mig bara að óska Kollu hjartanlega til hamingju með trúlofunina og óska henni alls hins besta í framhaldi af því. Ég á svo fastlega von á því að mér verði boðið í giftingu fljótlega þar sem trúlofun þýðir það að tveir einstaklingar ætli að ganga í það heilaga einu ári frá trúlofunardeginum.
Vil svo bara benda á það að ég og Addinn erum farnir að skipuleggja útilegu í sumar en það verður auglýst þegar nær dregur.
»
11.05.2004 14:41:37 / weekend82
Allir að taka þessa könnun... mjög skemmtilegar niðurstöður
 
http://gud.us/love-en.php?site=245879
»
Síður: 1 2 3
|